Níu létu lífið í sjálfsmorðsárás

Frá austurhluta Damaskus. Mynd úr safni.
Frá austurhluta Damaskus. Mynd úr safni. AFP

Að minnsta kosti níu létu lífið og 15 særðust í sjálfsmorðsárás í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, í dag.

Á meðal hinna látnu eru almennir borgarar og hermenn en sprengjan sprakk á Tahrir-torginu í austurhluta borgarinnar að sögn Ramis Abdels Rahmans, yfirmanns samtakanna Syrian Observatory for Human Rights, í samtali við AFP.

Að sögn Rahmans drápu öryggissveitir í dag jafnframt ökumenn tveggja grunsamlegra bifreiða á leið inn í borgina en frekari upplýsingar um það mál liggja ekki fyrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert