Einn lést í átökum í Egyptalandi

Lögreglan beitti táragasi á innrásarmennina og voru 10 handteknir í …
Lögreglan beitti táragasi á innrásarmennina og voru 10 handteknir í aðgerðinni sem kemur í kjölfarið á því að forseti Egyptalands, Abdel Fattah al-Sisi, fyrirskipaði herferð í þeim tilgangi að endurheimta land í eigu ríkisins sem hefur verið tekið af þeim með ólöglegum hætti. AFP

Einn maður lést og 59 særðust í átökum sem brutust út þegar öryggissveitir færðu menn af eyjunni Warraq sem þeir höfðu tekið eignarnámi en eyjan er í ánni Níl í Egyptalandi. Abdel Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands, er í miðri herferð sem miðar að því að endurheimta eignir og land í eigu ríkisins sem hefur verið tekið með ólöglegum hætti. 

Heilbrigðisráðuneyti Egyptalands staðfestir að einn maður hafi látist og 19 særst í árásinni. Þá greinir innanríkisráðuneytið frá að 37 lögreglumenn hafi slasast að störfum þegar þeir fluttu fólkið á brott. Lögreglan beitti táragasi og 10 voru handteknir í aðgerðunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert