Malbikunarframkvæmdir á Breiðholtsbraut

Malbikunarframkvæmdir verða á Breiðholtsbrautinni í dag.
Malbikunarframkvæmdir verða á Breiðholtsbrautinni í dag. mbl.is

Stefnt að því malbika 600m kafla á Breiðholtsbraut, mitt á milli Jafnarsels og Vatnsendahvarfs, í dag. Á vef Vegagerðarinnar segir að malbika eigi á báðar akreinar. Unnið verður við eina akrein í einu og má því búast við einhverjum umferðartöfum á framkvæmdatímanum, sem er áætlaður frá klukkan níu í dag til hálfátta í kvöld.

Eru vegfarendur  beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, sem eru þröng og menn og tæki því við vinnu mjög nálægt akbrautunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert