McCain með heilaæxli

Öldungadeildaþingmaðurinn John McCain greindist með heilaæxli í árlegri læknisskoðun.
Öldungadeildaþingmaðurinn John McCain greindist með heilaæxli í árlegri læknisskoðun. AFP

Öldungadeildaþingmaðurinn John McCain hefur verið greindur með æxli í heila og hefur nú hafið krabbameinsmeðferð. Æxlið fannst við árlega læknisskoðun og gekkst McCain undir skurðaðgerð fyrir helgi þar sem blóðtappi ofan við vinstra auga hans var fjarlægður. Rannsókn leiddi síðan í ljós að hann er með heilaæxli á frumstigi, sem þó vex hratt.

BBC hefur eftir lækni McCain að hann sé nú að jafna sig á aðgerðinni og sé ásamt fjölskyldu sinni að íhuga næstu skref, en vera kunni að hann fari í bæði lyfja- og geislameðferð til að vinna á meininu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert