Einn lét lífið og þrír eru alvarlega slasaðir eftir slys í tívolítæki í skemmtigarði í borginni Columbus í Ohio-ríki í Bandaríkjunum. Sá sem lést kastaðist út úr tækinu á ferð sem kallast „eldhnötturinn“ og var fallið niður á jörðina tæplega 10 metrar. BBC greinir frá.
Öllum tækjum í skemmtigarðinum hefur verið lokað í öryggisskyni á meðan á rannsókn málsins stendur yfir. Þetta segir John Kasich ríkisstjóri.
Slysinu má líkja við að vélhjól skelli með fullum þunga á vegg, að sögn læknis sem hefur hlúð að hinum slösuðu.