Charlie Gard, sem þjáðist af banvænum hrörnunarsjúkdómi, er látinn. Þetta hefur BBC eftir talsmanni fjölskyldu hans.
Hinn ellefu mánaða Charlie, sem var viðfangsefni langrar og biturrar lagadeilu, var fluttur á líknardeild og öndunarvél hans tekin úr sambandi. Hann lést skömmu síðar.
„Fallegi litli drengurinn okkar er farinn,“ sagði í yfirlýsingu frá foreldrum Charlies.
Þau höfðu háð bitra lagadeildu til að fá leyfi til að ferðast með Charlie til Bandaríkjanna til tilraunameðferðar. Á mánudag féllu þau frá þeirri kröfu og sögðu það orðið of seint. Þau óskuðu þess í staðinn að fá að eyða síðustu dögunum með honum heima þar sem hann gæti verið í öndunarvél fjarri spítalanum.
Breskur dómstóll hafnaði þeirri beiðni þeirra í gær og úrskurðaði að Charlie skyldi fluttur á líknardeild og öndunarvélin tekin úr sambandi fljótlega eftir það.