Undirritaði lög um refsiaðgerðir

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög sem fela í sér ýmiss konar refsiaðgerðir gegn Rússum.

Trump var mótfallinn aðgerðunum og börðust aðstoðarmenn hans gegn því að þær yrðu samþykktar á þinginu, án árangurs.

Forsetinn er sagður hafa undirritað lögin á bak við luktar dyr, fjarri sviðsljósi myndavéla.

Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti að beita refsiaðgerðunum vegna afskipta Rússa af bandarísku forsetakosningunum á síðasta ári og fyrir að hafa innlimað Krímskaga sem var áður undir yfirráðum Úkraínu.

Donald Trump.
Donald Trump. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert