Vill ekki að alþjóðasamfélagið skipti sér af

Mótmæli geysa í Venesúela.
Mótmæli geysa í Venesúela. AFP

Umdeilt stjórnlagaþing er komið saman í Venesúela, þrátt fyrir mikil mótmæli í landinu í framhaldi af kosningum til þingsins sem fram fóru síðasta sunnudag. Nýkjörinn forseti stjórnlagaþingsins varar alþjóðasamfélagið við því að skipta sér af málum í landinu.

Nicolás Maduro, forseti Venesúela, segir stjórnlagaþingið nauðsynlegt til að stuðla að frið í landinu eftir nokkurra mánaða óróleika. Stjórnarandstæðingar segja aftur á móti að með hinni nýju stofnun, sem verður falið að endurskrifa stjórnarskrá landsins, leitist forsetinn eftir því að auka völd sín.

Mikil mótmæli hafa staðið yfir í landinu og í höfuðborginni Caracas hefur lögregla beitt táragasi á mótmælendur sem reyndu að brjóta sér leið að þinginu. Nokkrir slösuðust þegar öryggissveitir reyndu að tvístra nokkur hundruð mótmælendum í sundur að því er fregnir herma.

Varar aðrar þjóðir við því að skipta sér af 

Á öðrum svæðum í borginni komu saman þúsundir stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar til að fagna og veifuðu fánum er fulltrúar stjórnlagaþingsins tóku sæti við setningu þingsins í dag. Einhverjir þeirra báru myndir af Hugo Chávez, fyrrum leiðtoga landsins, og af sjálfstæðishetjunni Simón Bolivar.

Á meðan sumir mótmæltu fögnuðu aðrir.
Á meðan sumir mótmæltu fögnuðu aðrir. AFP

Meðal þeirra 545 fulltrúa sem í dag tóku sæti á stjórnlagaþingi eru bæði eiginkona og sonur Maduro forseta. Þá var fyrrum utanríkisráðherra landsins og náinn bandamaður forsetans, Delcy Rodriguez, kjörin forseti þingsins.

Í opnunarræðu sinni fór Rodriguez hörðum orðum um stjórnarandstæðinga og kallaði þá „fasista“ auk þess sem hún varaði alþjóðasamfélagið við því að skipta sér af innanlandsmálum í Venesúela.

Frétt BBC

Delcy Rodriguez, forseti stjórnlagaþingsins og fyrrverandi utanríkisráðherra Venesúela, varar alþjóðasamfélagið …
Delcy Rodriguez, forseti stjórnlagaþingsins og fyrrverandi utanríkisráðherra Venesúela, varar alþjóðasamfélagið við því að skipta sér af innanríkismálum í landinu. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert