Fordæma ákvörðun öryggisráðsins

Yfirvöld í Norður-Kóreu fordæma nýja samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem á laugardag samþykkti hertar viðskiptaþvinganir á Norður-Kóreu vegna eldflaugatilrauna ríkisins.

Í yfirlýsingu sem birt var af ríkisfréttastofu Norður-Kóreu kemur fram að ekki komi til greina að taka þátt í samningaviðræðum um kjarnorkuvopnaáætlun landsins á meðan Bandaríkin hefðu í hótunum.

Telur N-Kórea að með viðskiptaþvingunum sé verið að brjóta alvarlega á sjálfstæði landsins. Með viðskiptaþvingunum má búast við verulegum samdrætti í útflutningstekjum Norður-Kóreu en þær nema um þremur milljörðum Bandaríkjadala á ári. Er talið að þær muni dragast saman um einn milljarð dala á ári. Má þar nefna útflutning á hrávöru, fiski og öðrum sjávarafurðum.

Öll ríkin fimmtán sem eiga sæti í öryggisráðinu greiddu atkvæði með hertum viðskiptaþvingunum, þar á meðal Rússar og Kínverjar sem hafa verið helstu bandamenn Norður-Kóreu í gegnum tíðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert