Svo virðist sem Hinrik prins geti ekki leitað huggunar hjá syni sínum, Friðriki krónprins, eftir fjölmiðlafár síðustu viku. Hann segist virkilega leiður vegna ákvörðunar föður hans að verða ekki jarðsettur við hlið Margrétar Danadrottningar.
Friðrik var viðstaddur athöfn í Árósum í dag og tjáði sig um ákvörðun föður síns, í fáum orðum.„Ég vil bara segja að ég er mjög leiður vegna ákvörðunar föður míns. Meira er ekki hægt að segja um málið að svo stöddu,“ sagði Friðrik við fjölmiðla á svæðinu.
Konungsfjölskyldan gaf það út í síðustu viku að Hinrik væri ósáttur við að fá ekki titilinn konungur. Í gær lýsti formaður Danska þjóðarflokksins yfir stuðningi við drottninguna í tengslum við málið.
Danska ríkisútvarpið greinir frá.