Tveir særðir eftir skotárás á Norðurbrú

Danska lögreglan að störfum í Kaupmannahöfn.
Danska lögreglan að störfum í Kaupmannahöfn. AFP

Tveir eru særðir eftir að skotárás var gerð í Kaupmannahöfn í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var nokkrum skotum hleypt af á Rauða torginu á Norðurbrú rétt fyrir miðnætti.

Skothylki hafa fundist á vettvangi en hlúð er að fólkinu á sjúkrahúsi.

Samkvæmt umfjöllun Ekstra Bladet voru það tveir grímuklæddir menn á bifhjóli sem voru að verki. Skotárásum hefur fjölgað í borginni í sumar vegna harðnandi átaka á milli glæpagengja.

Gert er ráð fyrir blaðamannafundi um atvikið klukkan 10.30 að dönskum tíma í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert