Birgitte fær opinberan titil

Birgitte Macron
Birgitte Macron AFP

Birgitte Macron, forsetafrú Frakklands, fær opinberan titil hjá forsetaembætti landsins. Frá þessu var greint í dag en hún fær ekki greitt fyrir að gegna embættinu, hefur ekki yfir neinum fjármunum ríkisins að ráða og getur ekki ráðið til sín starfsfólk.

Fyrirætlanirnar um að veita Birgitte opinberan titil féllu í grýttan jarðveg meðal þjóðarinnar og voru hugmyndir Emannuels Macrons Frakklandsforseta lagðar á hilluna í kjölfar undirskriftasöfnunar gegn hugmyndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert