Árásarmaðurinn viljugur til viðræðna

Abderrahman Mechkah ræðir við dómara í gegnum myndsíma úr sjúkrarúmi.
Abderrahman Mechkah ræðir við dómara í gegnum myndsíma úr sjúkrarúmi. AFP

Finnska lögreglan staðfesti fyrr í dag að maðurinn sem myrti tvær konur í hnífstunguárás í Turku fyrir rúmlega viku er Abderrahman Mechkah, rúmlega tvítugur hælisleitandi frá Marokkó.

Mechkah er fæddur árið 1994 en hann kom til Finnlands í fyrra og var umsókn hans um hæli hafnað.

„Lögregla hefur rætt við hinn grunaða árásarmann og hann er viljugur til að ræða við lögreglufulltrúa,“ er meðal þess sem kom fram í yfirlýsingu lögreglunnar.

Þar kom enn fremur fram að ekkert verði gefið upp um hvað hefur komið fram við yfirheyrslur á meðan rannsókn málsins stendur yfir.

Áður hafði lögreglan greint frá því að hún teldi líklegt að árásarmaðurinn væri ekki Mechkah. „Við telj­um að hinn grunaði hafi veitt rang­ar upp­lýs­ing­ar við kom­una til lands­ins,“ sagði lögreglan þá.

Sex hafa verið handteknir vegna árásarinnar en þremur þeirra hefur verið sleppt úr haldi.

Málið er rann­sakað sem fyrsta hryðju­verka­árás­in í Finn­landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert