Fari ekki í frí til heimalandsins

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands. AFP

Grípa þarf til harðari aðgerða gegn hælisleitendum ef þeir fara í leyfi til heimalandsins. Þetta sagði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, í viðtali við dagblaðið Welt am Sonntag í gær. Sagði hún það ekki ganga upp að fara í leyfi til landsins þar sem viðkomandi segðist vera ofsóttur. Það gæti orðið til þess að hælisumsóknin yrði endurskoðuð.

Fram kemur á fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph að engar opinberar tölur séu til um að hælisleitendur hafi farið í leyfi til heimalanda sinna en málið hafi hins vegar verið til umfjöllunar í þýskum fjölmiðlum.

Þýska dagblaðið Die Welt greindi frá því á síðasta árið að það hefði fundið dæmi þess að hælisleitendur hefðu ferðast til landa eins og Sýrlands og Afganistans í stuttan tíma og síðan snúið aftur til Þýskalands. Fulltrúi Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna, Martin Retsch, hafi hins vegar sagt að slíkt væri ekki „útbreitt“.

Telegraph segir málið til marks um þá spennu sem skapast hafi í Þýskalandi í kjölfar mikils straums hælisleitenda til landsins. Merkel hafi hins vegar varið þá stefnu sína að opna Þýskaland fyrir hælisleitendum fyrir tveimur árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert