Munir til minningar færðir á safn

Starfsmenn vinna að því að færa muni til minningar um …
Starfsmenn vinna að því að færa muni til minningar um fórnarlömbin í kassa sem fara á safn í Barcelona. AFP

Allar gjafir sem voru lagðar á reit til minningar um fórnarlömb hryðjuverkaárásarinnar á Römblunni í Barcelona 17. ágúst verða færðar á safn borgarinnar, að sögn borgarstjóra Barcelona. Alls létust 16 í árásinni og um 120 særðust þegar flutn­inga­bíl var ekið á gang­andi veg­far­end­ur á Römblunni. Síðar sama kvöld var fólks­bíl ekið á veg­far­end­ur í Cambrils. BBC greinir frá.   

Gríðarlega margir hafa vottað samúð sína með því að leggja blóm og aðra muni, t.d. bangsa, borða og kerti, á staðinn þar sem árásin varð. Í gær var hafist handa við að hreinsa svæðið og færa munina til safnsins sem „mikill fengur er að“, segir Ada Colau, borgarstjóri Barcelona. 

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert