Tveir rússneskir hermenn féllu

Hermenn um 40 kílómetrum vestur af Deir Ezzor.
Hermenn um 40 kílómetrum vestur af Deir Ezzor. AFP

Tveir rússneskir hermenn féllu í skotbardaga við vígamenn Ríkis íslams í héraðinu Deir Ezzor í austurhluta Sýrlands.

Varnarmálaráðuneyti Rússlands greindi frá þessu.

Annar hermaðurinn lést samstundis en hinn lést á sjúkrahúsi af sárum sínum.

Deir Ezzor er eina héraðið í Sýr­landi sem er enn und­ir stjórn Rík­is íslams.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert