Glæpasamtök gefa sig fram

Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, afhjúpar minnisvarða um heimsókn Frans …
Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, afhjúpar minnisvarða um heimsókn Frans Páfa til landsins. AFP

Ein stærstu glæpasamtök Kólumbíu sem dreifa fíkniefnum eru reiðubúin að gefa sig fram við stjórnvöld. Juan Manuel Santos, forseti Kólumbíu, greindi frá þessu í dag. Ríkisstjórnin átti fund með leiðtoga Gulf-glæpasamtakanna á sunnudaginn síðastliðinn þar sem hann greindi frá því að „hann væri tilbúinn að gefa sig fram ásamt öllum sínum liðsmönnum.“

Liðsmenn Gulf-glæpasamtakanna eru um 1.800 en hefur fækkað talsvert undanfarið. Í síðustu viku var annar hæstráðandi í glæpasamtökunum tekinn af lífi í aðgerðum yfirvalda.   

Dómsmálaráðherra og ríkislögmaður landsins munu meta tilboðið og næstu skref verða tekin í samræmi við það. Tilkynningin barst á sama tíma og heimsókn Frans páfa til Kólumbíu.   

Fyrir skömmu náðu kól­umb­ísk yf­ir­völd samningi um vopnahlé þjóðfrels­is­herinn ELN sem eru önn­ur stærstu sam­tök upp­reisn­ar­manna í Kól­umb­íu. 

Í des­em­ber síðastliðnum náðist sögu­legt sam­komu­lag kól­umb­ískra stjórn­valda og skæru­liðasam­tak­anna FARC, sem hafa stýrt kóka­rækt­un lands­ins og hagn­ast gríðarlega, þegar kól­umb­íska þingið samþykkt friðarsamn­ing sem stjórn­völd gerðu við skæru­liðasam­tök­in FARC um að binda endi á fimm ára­tuga átök sem hafa kostað 260.000 manns lífið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert