Fæddi ein heima vegna Irmu

Kona á gangi í Miami í Flórída þar sem allt …
Kona á gangi í Miami í Flórída þar sem allt er á floti. AFP

Kona frá Miami sem byrjaði að fá hríðir snemma í dag var leiðbeint í gegnum fæðinguna af starfsmanni neyðarlínunnar vegna þess að sjúkraflutningamenn komust ekki til hennar í tæka tíð vegna fellibylsins Irmu.

Hún var einnig ein á báti eftir að barnið kom í heiminn og þurfti því að sjá um fylgjuna og naflastrenginn sjálf. 

„Hún er í góðu jafnvægi heima hjá sér. Við höfðum samband við aðstoðarlækni hérna og töluðum við hana,“ sagði Eloy Garcia, aðstoðarslökkviliðsstjóri við Miami Herald.

Konan og barnið hennar voru síðar flutt á sjúkrahús af sjúkraflutningamönnum. 

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert