Kranar falla og þakið af

Miami-áin er yfirfull af vatni.
Miami-áin er yfirfull af vatni. AFP

Styrkur fellibylsins Irma er kominn úr fjórum í þrjá. Búist er við að bylurinn gangi yfir vesturströnd Flórída á næstu klukkustundum og er reiknað með vindhraða upp á 192 kílómetra á klukkustund.

Flætt hefur yfir hluta borgarinnar Miami. Vatnshæðin náði einum metra í fjármálahverfi borgarinnar þar sem ein gata leit út eins og á, að því er BBC greindi frá. 

Yfir ein milljón heimila er án rafmagns.

Um 6,3 milljónum manna var ráðlegt að yfirgefa heimili sín vegna fellibylsins.

Að minnsta 27 hafa látist af völdum Irmu í Karíbahafi og þrír á Flórída.

Fjölmargir Flórídabúar hafa myndað ósköpin og birt á samskiptamiðlinum Twitter. Þar má meðal annars sjá krana falla og þak sem fauk af húsi:


 







Brotin tré í Pembroke Pines á Flórída.
Brotin tré í Pembroke Pines á Flórída. AFP
Íbúar Miami standa í ströngu við Miami-ánna.
Íbúar Miami standa í ströngu við Miami-ánna. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert