Ný mynd af hlauparanum

Myndin af manninum kemur úr öryggismyndavél sem staðsett er um …
Myndin af manninum kemur úr öryggismyndavél sem staðsett er um borð í strætisvagni númer 430. Breska lögreglan

Lögregluyfirvöld í London hafa gert opinbera nýja mynd af manninum sem eftirlýstur er fyrir að hafa hrint konu með þeim afleiðingum að hún varð næstum því fyrir strætisvagni í síðasta mánuði. Guardian greinir frá.

Myndin af manninum kemur úr öryggismyndavél sem staðsett er um borð í strætisvagni númer 430, en það er strætisvagninn sem rétt slapp við að aka á höfuð konunnar, þökk sé skjótum viðbrögðum bílstjórans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert