Sæti varðhaldi fyrir færslu um hár Clinton

Martin Shkreli verður gert að sæta varðhaldi fyrir að bjóða …
Martin Shkreli verður gert að sæta varðhaldi fyrir að bjóða 5000 dollara fyrir hár af höfði Hillary Clinton. AFP

Martin Shkrelis, einn hataðist maður Bandaríkjanna, hefur verið dæmdur í varðhald vegna orða sem hann lét falla um hár Hillary Clinton á meðan hann bíður dómsuppkvaðningar í fjársvikamáli.

Dómarinn Kiyo Matsumoto sagði Facebook-færsla Shkelis, sem bauð 5.000 dollara fyrir hár af höfði Hillary Clinton, sýna að almenningi stafaði ógn af honum.

Shkreli komst í frétt­irn­ar þegar hann keypti rétt­inn á al­næm­is­lyf­inu Daraprim og hækkaði verðið fimm­tíufalt í einni svip­an. Síðan þá hef­ur hann verið þekkt­ur sem „hataðasti maður Banda­ríkj­anna.“ Kviðdóm­ur dæmdi hann í síðasta mánuði sek­an fyr­ir stór­felld fjár­svik, en hann var hins veg­ar sýknaður af al­var­leg­ustu ákæru­liðunum um sam­særi með að hafa sett upp svika­myllu fyr­ir fjár­festa. 

Shkreli birti færslu sína í byrjun þessa mánaðar, um það leiti sem Clinton hóf að kynna bók sína um kosningabaráttuna gegn Donald Trump. Shkreli segir færslu sína, sem búið er að eyða, vera setta fram í kaldhæðni og að hann njóti verndar málfrelsisákvæðis stjórnarskrárinnar.

Dómarinn var á öðru máli og sagði boð hans um fjárgreiðslu fyrir líkamsárás ekki falla þar undir. Shkreli hefur því verið gert að sæta varðhaldi þar til dómur verður kveðinn upp varðandi fjársvikamálið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert