Vopnuð lögregla gerir húsleit í London

Vopnuð lögregla framkvæmir nú húsleit í íbúðarhúsnæði í London.
Vopnuð lögregla framkvæmir nú húsleit í íbúðarhúsnæði í London. AFP

Vopnuð lögregla hefur rýmt húsnæði í íbúðahverfi í London í tengslum við hryðjuverkaárásina í gær. Fyrr í dag var 18 ára maður handtekinn, einnig í tengslum við árásina.

„Lögregla hefur rýmt húsnæði í Sunbury og framkvæmir nú leit,“ segir í tilkynningu frá lögreglu. Lögregla hefur afmarkað um 100 metra svæði í kringum húsið. 

Í það minnsta 30 slösuðust þegar sprengja sprakk í lest­ar­vagni við Par­sons Green-lest­ar­stöðina í London í gær. 

BBC greinir frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert