Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, boða enn frekari refsiaðgerðir gagnvart Norður-Kóreu eftir að stjórnvöld í landinu skutu eldflaugaskoti í kjölfar nýsamþykktra hertra viðskiptaþvingana af hálfu Sameinuðu þjóðanna. AFP-fréttastofan greinir frá.
Leiðtogarnir tveir ræddu saman í síma á sunnudag þar sem þeir fordæmdu alvarlega nýjasta útspil stjórnvalda í Norður-Kóreu.
„Leiðtogarnir voru sammála um að beita hefðbundnari og enn meiri þrýstingi til að gera stjórnvöldum í Norður-Kóreu grein fyrir því að frekari aðgerðir af þeirra hálfu komi til með að einangra landið enn frekar og leiða til falls ríkisins,“ sagði í tilkynningu frá forsetaskrifstofu Suður-Kóreu. Hyggjast þeira bera tillögur sínar undir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna á næstu dögum.
Kim Jong-un hefur sagt að eldflaugaskotið á föstudag hafi heppnast mjög vel og að Norður-Kórea sé nú nálægt því að fullkomna eldflauga- og kjarnorkuáætlun sína.