Ed Sheeran aflýsir líka tónleikum

Ed Sheeran hefur aflýst tónleikum sínum sem áttu að fara …
Ed Sheeran hefur aflýst tónleikum sínum sem áttu að fara fram í bandarísku borginni St. Louis í kvöld. AFP

Ed Sheeran hefur aflýst tónleikum sínum í bandarísku borginni St. Louis vegna ástandsins sem þar ríkir eftir að lögregluþjónn var sýknaður af morðákæru eftir að hafa skotið svartan mann árið 2011 en lögregluþjónninn hafði veitt bifreið mannsins eftirför vegna gruns um fíkniefnasölu.

Líkt og greint var frá á mbl.is aflýsti írska rokkhljómsveitin U2 tónleikum sínum sem áttu að fara fram í borginni í gærkvöldi en tónleikar Ed Sheeran áttu að fara fram í kvöld. Í yfirlýsingu frá U2 sagði að hljómsveitin treysti sér ekki til að spila á tónleikum vitandi að öryggisgæsla væri ónóg fyrir viðburð af þeirri stærðargráðu sem tónleikarnir áttu að vera.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert