Kjarnorkusamningurinn í uppnámi?

Trump segir lítið fara yfir kjarnorkusamningum hjá Írönum.
Trump segir lítið fara yfir kjarnorkusamningum hjá Írönum. AFP

Tilraunaskot stjórnvalda í Íran á meðaldrægri eldflaug fyrr í dag gæti hugsanlega sett í uppnám kjarnorkusamninginn sem gerður var á milli Bandaríkjanna og Íran árið 2015, þegar Barack Obama var forseti. AFP-fréttastofan greinir frá.

Litið er á skotið sem ögrun við Donald Trump, núverandi forseta Bandaríkjanna, sem gagnrýndi eldflaugaáætlun Íran harðlega í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í vikunni. Ýjaði forsetinn meðal annars að því að Íranar væru vísir til að brjóta gegn samningnum og að til greina kæmi að rifta honum. Trump sakar Íran nú einnig um að vera í samstarfi við stjórnvöld í Norður-Kóreu.

Hann skrifaði færslu um málið á Twitter nú í kvöld. „Íranar skutu eldflaug í tilraunaskoti, sem gæti náð alla leið til Ísrael. Þeir eru líka í samstarfi við Norður-Kóreu. Það fer ekki mikið fyrir samkomulaginu okkar!“ skrifaði forsetinn á Twitter.

Eldlaug­inni, sem hef­ur tveggja þúsunda kíló­metra drægi, var skotið upp í morg­un og var sýnt beint frá skot­inu í rík­is­sjón­varpi lands­ins. Ekki hef­ur verið upp­lýst um hvaðan henni var skotið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert