Myrti fjölskyldumeðlimi til að „frelsa þau“

AFP

Bandarískur karlmaður á þrítugsaldri sem hefur verið ákærður fyrir að hafa barið móður sína, ömmu sína og afa og umönnunaraðila þeirra til bana í Massachusetts fyrr í mánuðinum með hafnarboltakylfu, segist hafa verið að „frelsa þau“. Þetta kemur fram í lögregluskýrslum.

Hinn 22 ára gamli Orion Krause var nakinn og þakinn mold og skurðum þegar hann var handtekinn á heimili nágranna síns eftir morðin, þann 8. september sl. Í lögregluskýrslunum segir að hann hafi sagt lögreglumönnum að hann hafi framið fjögur morð. Eftir að lögreglumenn hafi fært honum teppi hafi hann byrjað að syngja lágt.

Manninum er haldið á réttargeðdeild, en þar er hann sagður hafa sagt hjúkrunarfræðingi að hann notaði heróín. 

Fyrir dómara neitaði Krause sök, en hann er ákærður fyrir að hafa myrt móður sína; hina 60 ára gömlu Elizabeth Krause, foreldra hennar; hinn 89 ára gamla Frank Darby Lackey III og hina 85 ára gömlu Elizabeth Lackey, og umönnunaraðila þeirra; hina 89 ára gömlu Berthu Mae Parker.

Krause útskrifaðist nýverið frá listaháskóla í Ohio þar sem hann lagði stund á nám í djasstrommuleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert