Aðeins eru tæpar þrjár vikur síðan Georg prins hóf skólagöngu sína en hann virðist samt sem áður verða kominn með skólaleiða.
Barack Obama.The Telegraph greinir frá því að Georg sé kominn með leið á að þurfa að mæta daglega í skólann, hinn fjögurra ára gamla prins vanti einhverja tilbreytingu í líf sitt. Vilhjálmur Bretaprins, faðir hans, sagði í samtali við foreldri samnemanda Georgs að sonurinn hafi ekki viljað fara í skólann þann morguninn.
Georg prins byrjaði í Thomas's Battersea einkaskólanum 7. september og hefur faðir hans fylgt honum nánast daglega í skólann á meðan Katrín hertogaynja tekur því rólega heima fyrir þar sem þjáist af mikilli morgunógleði. Nýlega var tilkynnt um að hertogahjónin ættu von á sínu þriðja barni.
Prinsinn litli ætlar þó að sýna gott fordæmi og vera duglegur að mæta í skólann og sinna sínum skyldum.