Lögregla leggur hald á kjörkassa í Katalóníu

Til átaka kom milli lögreglu og aðskilnaðarsinna í Sarria de …
Til átaka kom milli lögreglu og aðskilnaðarsinna í Sarria de Ter, þar sem forseti Katalóníu átti að kjósa. AFP

Hópar fólks hafa þegar safnast saman fyrir utan kjörstaði í Katalóníu, en sjálfstæðissinnar í héraðinu standa fyrir kosningum í dag um sjálfstæði Katalóníu. Yfirvöld í héraðinu segja kjörkassa vera tilbúna og búast við að mikill fjöldi Katalóníubúa mæti á kjörstað.

Spænska óeirðalögreglan hefur lokað af kjörstað í bænum Girona þar sem leiðtogi aðskilnaðarsinna átti að kjósa  og að sögn AFP-fréttastofunnar kom til einhverra átaka er lögregla kom á staðinn. Er lögregla einnig sögð hafa brotið sér leið inn á kjörstað í Girona eftir að hafa áður umkringt húsið. 

Þá hefur lögregla lagt hald á kjörkassa í Barcelona að því er spænska innanríkisráðuneytið greindi frá á Twitter og birti mynd af kjörkössum.

Stjórnlagadómstóll Spánar hefur dæmt kosninguna ólöglega og stjórnvöld í Madrid hafa heitið því að koma í veg fyrir kosninguna.

Spænska stjórn­in hef­ur sent þúsund­ir lög­reglu­manna til Barcelona til að koma í veg fyr­ir at­kvæðagreiðsluna og í gær lokaði lög­regl­an 1.300 af 2.315 skól­um í Katalón­íu á Spáni sem nota átti sem kjörstaði.

Þúsundir aðgerðasinn­a komu sér hins vegar fyr­ir í rúm­lega 160 skól­um og gerðu ráð fyrir að dvelja þar í nótt til að reyna að hindra að yf­ir­völd loki skól­un­um.

Sagði AFP kenn­ara, for­eldra og náms­menn vera í hópi þeirra sem tóku skólana yfir, en fólkið hefur ekki farið úr skólunum frá því á föstudag og tók með sér svefnpoka og gisti m.a. í íþróttasölum skólanna.

BBC segir lögreglu fullyrða að ekki verði leyft að opna kjörstaðina og að þeir sem þar dvelja nú þegar verði reknir á brott.

Í sumum svæðum í héraðinu hafa bændur komið traktorum sínum fyrir á vegum fyrir framan kjörstaði og hlið á skólalóðum hafa verið fjarlægð til að gera yfirvöldum erfiðara að loka byggingunum.

Skipuleggendur kosninganna höfðu hvatt kjósendur til að mæta á kjörstað strax klukkan fimm í morgun að staðartíma og bíða þar til kjörstaðir yrðu opnaðir um níuleytið. Þeir hvöttu til friðsamlegra mótmæla við  aðgerðum lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert