Pútín: Grimmdin er sláandi

Vladimir Pútín forseti Rússlands.
Vladimir Pútín forseti Rússlands. AFP

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vottaði Bandaríkjunum samúð sína í yfirlýsingu sem hann sendi Hvíta húsinu vegna fjöldamorðsins í Las Vegas.

„Grimmd þessa glæps sem hefur orðið tugum friðsamra óbreyttra borgara að bana er sláandi,“ sagði Pútín í yfirlýsingunni.

Hann vottaði einnig fjölskyldum fórnarlambanna samúð sína.

Að minnsta kosti 58 manns eru látn­ir og yfir 500 eru særðir eft­ir árás­ina.

Frá vettvangi glæpsins.
Frá vettvangi glæpsins. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert