„Óeirðalögregluna burt!“ og „Göturnar verða alltaf okkar!“ hrópa mótmælendur á götum Barcelona í dag. Íbúar í Katalóníu hafa streymt út á götur borgarinnar til að mótmæla lögregluofbeldi sem kjósendur og almennir borgarar urðu fyrir á sunnudag.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Barcelona mótmæla nú um 300.000 manns á götum borgarinnar.
Átök brutust út á í fyrradag þegar íbúar sjálfsstjórnarhéraðsins í Katalóníu kusu um sjálfstæði héraðsins. Kjörsókn var um 42% og kusu um 90% kjósenda með sjálfstæði. Hæstiréttur á Spáni hefur dæmt kosningarnar ólöglegar.
Hátt í tvö hundruð sérsveita- og óeirðalögreglumönnum voru sendir til Katalóníu af yfirvöldum á Spáni í þei mtilgangi að stöðva atkvæðagreiðsluna. Lögreglumennirnir dvöldu á hóteli í um 70 kílómetra fjarlægð frá Barcelona, en stjórnendur hótelsins vísuðu þeim í burtu í gærkvöldi.
Frétt mbl.is: Spænskum löggum vísað út af hóteli
Fólk hefur safnast saman á öllum torg og við helstu kennileiti í miðborg Barcelona. Þegar þyrla á vegum lögreglunnar flaug yfir svæðið blésu mótmælendur í flautur og einhverjir sendu þyrlunni fingurinn.
Allsherjarverkfall ríkir í Katalóníu og hefur það mikil áhrif á umferð í Barcelona, almenningssamgöngur og ýmsa þjónustu, svo sem heilbrigðisþjónustu. Þá eru margir af helstu ferðamannastöðum borgarinnar lokaðir, þar á meðal er Sagrada Familia kirkjan.