Filippus Spánarkonungur ætlar að ávarpa þjóð sína í kvöld í tilefni af þeim átökum sem hafa orðið vegna atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu.
Um 300 þúsund Spánverjar mótmæltu á götum Barcelona í dag því lögregluofbeldi sem kjósendur og almennir borgarar urðu fyrir á sunnudaginn.
Kjörsókn í atkvæðagreiðslunni var aðeins 42% og kusu um 90% með sjálfstæði. Hæstiréttur á Spáni hefur dæmt kosningarnar ólöglegar.