Þau sem létust í Las Vegas

Aðstandendur og syrgjendur hafa kveikt á fjölda kerta til minningar …
Aðstandendur og syrgjendur hafa kveikt á fjölda kerta til minningar um þá sem létust í skotárás í Las Vegas í gær. AFP

Skotárásin í Las Vegas í gær er sú mann­skæðasta í Banda­ríkj­un­um fram til þessa. Nöfn nokk­urra af þeim 59 sem árásarmaðurinn skaut til bana hafa verið op­in­beruð. Meðal fórnarlamba eru fyrrum hermenn, hjúkrunarfræðingur, fallhlífarstökkvari, eiginkonur, eiginmenn, ömmur og sérkennari, allt fólk sem á einstaka sögu.

Hér er það sem við vitum um fórnarlömbin. 

Charleston Hartfield:

Charleston var fyrrum hermaður og starfaði sem lögreglumaður í Las Vegas. Hann sá einnig um þjálfun yngri flokka í amerískum fótbolta. Charleston var ekki á vakt þegar árásarmaðurinn hóf skothríð heldur var hann að njóta sín á tónleikunum.

Sonny Melton:

Hjúkrunarfræðingurinn Sonny bjargaði lífi eiginkonu sinnar, Heather, með því að skýla henni fyrir skothríðinni með þeim afleiðingum að hann varð sjálfur fyrir skoti. Sonny og Heather voru búsett í Tennessee og höfðu verið gift í rúmlega eitt ár.

Denise Burditus:

Denise var á tónleikum kántrístjörnunnar Ja­son Ald­en ásamt eiginmanni sínum Tony. Hann greindi frá því á Facebook síðu sinni að hún hefði dáið í fanginu á honum. Denise var tveggja barna móðir og var í þann mund að verða amma í fimmta sinn. Hún birti mynd af þeim hjónum á Facebook, skömmu áður en skotárásin hófst. 

Sandy Casey:

Sandy var búsett Manhattan Beach í Kaliforníu þar sem hún starfaði sem sérkennari. Sandy, sem var á tónleikunum ásamt unnusta sínum, var skotin í bakið af árásarmanninum. ABC7 fréttastofan hefur eftir samstarfsmanni Sandy að hún hafi verið elskuð og dáð af nemendum sínum sem og samstarfsmönnum.

Chris Roybal:

Fyrrum hermaðurinn Chris var nýkominn heim frá Afganistan. Hann var á tónleikunum ásamt móður sinni en leiðir þeirra skildu rétt áður en skothríðin hófst. Hún hljóp í gegnum byssuskotin í leit að syni sínum ne kom að honum látnum. „Hann fór í bardaga og kom óslasaður heim, en svo fer hann á tónleika og deyr,“ sagði móðir Chris í samtali við NBC4 fréttastöðina.

Thomas Day:

Smiðurinn Thomas var á tónleikunum ásamt fjórum uppkomnum börnum sínum. Þau lifðu árásina af en Thomas lét lífið. „Hann var besti pabbi í heimi. Þess vegna voru börnin með honum,“ hefur LA Times eftir föður Thomas.

Hannah Ahlers:

Hannah var þriggja barna móðir. Hún var fallhlífarstökkvari og mikil útivistarkona. Vinkona hennar lýsir henni sem „einni af fallegustu konum sem hún hefur kynnst, jafnt að innan sem utan.“

Angie Gomez:

Angie var klappstýra og búsett í Kaliforníu. Fjölskylda hennar lýsir henni sem „glaðværri og hjartahlýrri ungri konu með hlýtt viðmót.“

Frétt BBC fréttastofunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert