Norðurkóreskir tölvuhakkarar hafa stolið hundruðum leynilegra hernaðarskjala frá Suður-Kóreu, þar á meðal nákvæmum aðgerðaráætlunum á stríðstímum sem voru unnin í samstarfi við Bandaríkin.
Suðurkóreski þingmaðurinn Rhee Cheol-Hee sagði að tölvuhakkararnir hafi brotist inn í netþjón hersins í september og komist yfir 235 gígabæt af viðkvæmum gögnum.
Í einu skjalinu er greint frá aðgerðum ef til stríðs við Norður-Kóreu kemur, þar á meðal áætlanir um að ráða leiðtogann Kim Jong-un af dögum.
Donald Trump hefur hótað hernaðaraðgerðum gegn Norður-Kóreu á sama tíma og stjórnvöld í höfuðborginni Pyongyang hafa fjölgað tilraunum sínum með eldflaugar og kjarnorkuvopn.