17 dauðsföll staðfest í Kaliforníu

Frá skóareldunum.
Frá skóareldunum. AFP

Meira en 150 er saknað eftir mikla skólgarelda í norðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum. Um er að ræða helsta vín­fram­leiðslu­svæði rík­is­ins.

Lögregla hefur staðfest 17 dauðsföll í tengslum við brunann. Auk þess eru meira en 2.000 byggingar ónýtar en eldurinn braust út á sunnudag. 

Bærinn Santa Rosa, rétt norðan við San Francisco, hefur orðið einna verst úti í eldsvoðanum en heilu hverfin hafa þurrkast út þar. 

Í það minnsta ellefu hafa látið lífið í Sonoma-héraði en eldarnir eru með þeim mannskæðustu í Kaliforníu.

Upp­tök skógar­eld­anna eru enn ókunn en mikl­ir þurrk­ar hafa verið á svæðinu í tals­verðan tíma. Slökkviliðsstarf hef­ur gengið erfiðlega, sér­stak­lega vegna mik­illa vinda. 

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert