Veiktust af eiturgufum í ESB-byggingu

Sjúkrabílarnir stóðu í röðum fyrir utan Europa bygginguna í morgun.
Sjúkrabílarnir stóðu í röðum fyrir utan Europa bygginguna í morgun. AFP

15 veiktust hastarlega og 5 voru fluttir á sjúkrahús vegna eitraðra gufa sem mynduðust í eldhúsi nýjustu byggingar Evrópusambandsins í Brussel. Um er að ræða Europa bygginguna sem tekin var í notkun í janúar á þessu ári, en til stendur að leiðtogar ESB hittist í byggingunni í næstu viku. AFP-fréttastofan greinir frá.

Nokkrir sjúkrabílar voru kallaðir til og og þurfti að flytja 5 einstaklinga á sjúkrahús vegna einkenna sem hlutust af eiturgufunum. Um var að ræða heiftarleg uppköst og óþægindi í augum.

Svo virðist sem einhver efni hafi blandast saman í eldhúsinu og skapað eiturgufur. Þá virðist loftræstingin ekki hafa virkað sem skyldi. Flestir þeirra sem veiktust voru starfsmenn í eldhúsinu.

Belgíska slökkviliðið og lögregla var kölluð til og mun rannsaka hvað gerðist í eldhúsinu sem varð til þess að eiturgufur mynduðust.

Í tilkynningu segir að atvikið muni ekki hafa áhrif á fund leiðtogaráðs Evrópusambandsins í næstu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert