Stefnir í skarpa hægrisveiflu

Sebastian Kurz, leiðtogi austurríska Þjóðarflokksins.
Sebastian Kurz, leiðtogi austurríska Þjóðarflokksins. AFP

Kosið verður til þings í Austurríki í dag og er búist við að íhaldsmaðurinn Sebastian Kurz taki í kjölfarið við sem kanslari landsins. Kurz verður þar með yngsti leiðtogi ríkis innan Evrópusambandsins en hann er 31 árs gamall.

Fram kemur í frétt AFP að gert sé ráð fyrir að austurríski Þjóðarflokkurinn, flokkur Kurz, fái yfir 30% fylgi í kosningunum og muni í kjölfarið mynda ríkisstjórn með Frelsisflokknum sem skilgreindur hefur verið sem öfgahægriflokkur. 

Fram kemur í frétt AFP að verði þetta niðurstaðan skapi það nýjan höfuðverk fyrir Evrópusambandið ofan á útgöngu Bretlands úr sambandinu og uppgang lýðhyggjuflokka víða í ríkjum þess eins og í Þýskalandi og Póllandi.

Helstu áherslur Kurz eru að taka á innflytjendamálunum og þá einkum er snúa að hælisleitendum og ólöglegum innflytjendum. Fjöldi fólks hefur komið til Austurríkis á undanförnum árum í gegnum Balkanskagann.

Verði ekki „minnihluti í eigin heimalandi“

Kurz hefur einnig lagt áherslu á hóflega skattastefnu. Frelsisflokkurinn mælist í skoðanakönnunum með 25% fylgi en lengi vel var hann með mest fylgi í könnunum þar til Þjóðarflokkurinn kynnti harðari innflytjendastefnu.

Leiðtogi Frelsisflokksins, Heinz-Christian Strache, flutti ræðu á kosningafundi á föstudaginn og hét því að hindra að Austurríkismenn yrðu „minnihluti í eigin heimalandi.“ Flokkurinn var á sínum tíma stofnaður af fyrrverandi nasistum.

Heinz-Christian Strache, leiðtogi Frelsisflokksins, á kosningafundi á föstudaginn.
Heinz-Christian Strache, leiðtogi Frelsisflokksins, á kosningafundi á föstudaginn. AFP

Jafnaðarmenn, sem eru við völd í landinu, hafa átt á brattann að sækja. Meðal annars vegna hneykslismála. Leiðtogi þeirra, Christian Kern núverandi kanslari, varaði í gær við fyrirhugaðri hægristjórn og vísaði til sögunnar.

Ekki er talið líklegt að Jafnaðarmenn og Þjóðarflokkurinn geti unnið saman í ljósi þess að Kern og Kurz hafa átt í útistöðum. Þjóðarflokkurinn og Frelsisflokkurinn hafa áður starfað saman í ríkisstjórn á árunum 2000-2007.

Vill skerða bætur til allra útlendinga

Talið er að samstarf flokkanna verði ekki eins umdeilt nú í ljósi þess að þjóðernissinnaðir flokkar hafa víða náð árangri í Evrópu á undanförnum árum. Kurz hefur heitið því að skerða bætur til allra útlendinga og loka íslömskum leikskólum.

Kurz tók við Þjóðarflokknum og batt þá enda á samstarf við Jafnaðarmenn sem varð til þess að boðað var til kosninga fyrr en til stóð áður. Kurz var áður utanríkisráðherra Austurríkis og beitti sér sem slíkur mjög í innflytjendamálum.

Flokkarnir tveir eru ennfremur sammála um að lækka skatta, draga úr regluverki og stemma stigum við afskiptum Evrópusambandsins af innanlandsmálum. 

Kjörstaðir voru opnaður klukkan 4:00 að íslenskum tíma og loka klukkan 15:00. Talið er að fyrstu tölur liggi fljótlega fyrir eftir lokun kjörstaða. Um 6,4 milljónir manna eru á kjörskrá.

Christian Kern, kanslari Austurríkis og leiðtogi Jafnaðarmanna.
Christian Kern, kanslari Austurríkis og leiðtogi Jafnaðarmanna. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert