Náðu Deir Ezzor á sitt vald

Reykur stígur upp í loftið frá byggingu í borginni Deir …
Reykur stígur upp í loftið frá byggingu í borginni Deir Ezzor. AFP

Sýrlenski herinn og bandamenn hafa náð sýrlensku borginni Deir Ezzor aftur á sitt vald frá Ríki íslams. Rússneski herinn tók þátt í aðgerðinni.

Þetta segja mannréttindasamtökin Syrian Observaroty for Human Rights.

AFP-fréttastofan hefur ekki fengið staðfest að þetta hafi tekist en sé þetta raunin er ljóst að Ríki íslams hefur misst síðustu af stóru borgunum sem samtökin höfðu eitt sinn á valdi sínu.

Í síðasta mánuði hrökkluðust hryðjuverkasamtökin frá borginni Raqqa, sem var mikill ósigur fyrir þau.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert