Geldof skilaði heiðursverðlaunum

Geldof, til hægri, heldur á viðurkenningarskjalinu sem hann skilaði.
Geldof, til hægri, heldur á viðurkenningarskjalinu sem hann skilaði. AFP

Tónlistarmaðurinn og aðgerðasinninn Bob Geldof hefur skilað heiðursverðlaunum sínum Freedom of the City of Dublin í mótmælaskyni vegna Aung San Suu Kyi, leiðtoga Búrma, sem einnig er handhafi verðlaunanna.

Geldof sagði að í yfirlýsingu að tengsl hennar við verðlaunin væru til skammar, að því er BBC greindi frá. 

Aung San Suu Kyi hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast ekki við ásökunum um þjóðernishreinsanir á rohingja-múslimum frá Búrma.

Yfir hálf milljón rohingja-múslima hefur flúið til Bangladess.

„Tengsl hennar við borgina okkar er okkur öllum til smánar og við ættum ekki að taka þátt í því. Við heiðruðum hana en núna vekur hún hjá okkur viðbjóð og er okkur til skammar,“ sagði Geldof.

Leiðtogar og mannréttindasamtök hafa gagnrýnt Suu Kyi fyrir að viðurkenna ekki ofbeldi hersins í Búrma gegn rohingja-múslimum, sem Sameinuðu þjóðirnar segja „skólabókardæmi um þjóðernishreinsun”.

Sumir hafa einnig viljað láta svipta Suu Kyi Nóbelsverðlaununum sem hún hlaut árið 1991.

Aung San Suu Kyi.
Aung San Suu Kyi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert