Að minnsta kosti 50 létust

Hermenn við æfingar í norðurhluta Nígeríu.
Hermenn við æfingar í norðurhluta Nígeríu. AFP

Að minnsta kosti fimmtíu eru látnir eftir að sprengja sprakk í mosku í nágrenni bæjarins Mubi í norðaustanverðri Nígeríu í dag. Um sjálfsmorðsárás var að ræða.

Talsmaður lögreglunnar telur að hryðjuverkasamtökin Boko Haram beri ábyrgð á tilræðinu.

Árásin var gerð er fólk var við morgunbænir í Madina-moskunni. Fjöldi manns var fluttur særður á sjúkrahús í nágrenninu. Lögreglan segir að árásarmaðurinn hafi falið í sig meðal þeirra sem voru að biðja í moskunni og sprengt sig svo í loft upp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert