Rangt af Trump að deila færslunni

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands. AFP

Talsmaður Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, segir að það hafi verið rangt af Donald Trump Bandaríkjaforseta að deila færslu breska öfgahópsins Britain First á Twitter.

„Britain First reynir að tvístra samfélögum með því að nota hatursfulla orðræðu með lygum og með því að ala á aukinni spennu. Þau valda kvíða hjá löghlýðnu fólki,” sagði talsmaðurinn.

Hann bætti við að mikill meirihluti almennings í Bretlandi hafni fordómum hægri öfgahópa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert