Björgunarleit að kafbátinum hætt

San Juan kafbáturinn sem saknað er. Ekkert samband hefur náðst …
San Juan kafbáturinn sem saknað er. Ekkert samband hefur náðst við 44 manna áhöfn kafbátsins og er áhöfnin nú talinn af. AFP

Björgunarleit að argentínska kafbátinum ARA San Juan, sem ekkert hefur til spurst frá því um miðjan síðasta mánuð, hefur verið hætt. Argentínski sjóherinn tilkynnti í gær að ekki væri lengur um björgunaraðgerð að ræða. 44 voru í áhöfn kafbátsins, sem umfangsmikil leit sem 13 þjóðir hafa tekið þátt í, hefur staðið yfir að undanfarnar tvær vikur.

„Þrátt fyrir umfang leitaraðgerðanna þá hefur ekki tekist að staðsetja kafbátinn,“ hefur BBC eftir Enrique Balbi, talsmanni sjóhersins. Ástvin­ir áhafn­ar­inn­ar eru flest­ir bún­ir að missa von­ina um að ein­hver sé á lífi um borð

Síðustu samskipti sjóhersins við kafbátinn áttu sér stað 15. nóvember. Vonir um að það tækist að finna  áhöfn kafbátsins á lífi dofnuðu eftir að greint var frá því fyrr í vikunni að sprenging hafi herst í nágrenni við þann stað þar sem síðast fréttist af kafbátinum. Arg­entínski sjó­her­inn hef­ur staðfest að hljóðið gæti hafa stafað af spreng­ingu í bátn­um.

Balbi sagði kafbátsins nú hafa verið leitað nær helmingi lengur en þann daga fjölda sem talið hefði verið mögulegt að finna áhöfn hans á lífi, en áður hefur verið greint frá því að áhöfnin ætti að geta haft nægt súrefni til að vera í kafi í viku.

Ekki væri þó enn hægt að úrskurða neitt um örlög áhafnarinnar, enda hafi engin merki um skipsflak fundist á svæðinu þar sem leitað hefur verið. Leitaraðgerðum hafi þó verið breytt og nú sé svipast um eftir flaki á hafsbotninum þar sem að talið er að kafbáturinn hafi horfið.

Talið er að sjór hafi kom­ist inn í bát­inn í gegn­um lofttúðu á skrokk hans. Sjór­inn hafi svo kom­ist í einn af raf­geym­um báts­ins og or­sakað skamm­hlaup.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert