Fær frest til að semja fjárlagafrumvarp

Donald Trump.
Donald Trump. AFP

Bandaríkjaþing samþykkti í dag lagafrumvarp til þess að tryggja að fjármagn til reksturs hins opinbera í Bandaríkjunum geti haldið áfram og að ekki komi til þess að hann stöðvist. 

Fram kemur í frétt AFP að samþykkja hafi þurft frumvarpið fyrir lok þessarar viku en það veitir ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta tveggja vikna frest til þess að setja saman fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár eða fram til 22. desember.

Öldungadeildin samþykkti frumvarpið einungis nokkrum klukkutímum eftir að fulltrúadeildin hafði gert hið sama en samkomulag var á milli Repúblikana og Demókrata um það.

Trump mun þurfa að vinna bæði með þingmönnum Repúblikana og Demókrata til þess að koma saman fjárlagafrumvarpi sem njóti nægjanlegs stuðnings í þinginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert