Skaut fjóra félaga sína til bana

Wikipedia

Herlögreglumaður drap fjóra félaga sína og særði þann fimmta í herbúðum í Indlandi í gær í kjölfar rifrildis. Mennirnir fjórir létu lífið samstundis.

Fram kemur í frétt AFP að atburðurinn hafi átt sér stað í Bijapur-héraði. Haft er eftir lögreglunni á svæðinu að málið sé til rannsóknar. Þar með talið hvers vegna maðurinn, hinn 35 ára gamli Sanath Kumar, hafi skotið mennina til bana.

Kumar var handtekinn í kjölfarið og eru yfirheyrslur í gangi. Mikil óánægja hefur lengi verið innan öryggissveita Indlands vegna langra vakta og almennt slæmra starfsskilyrða.

Rifjað er upp í fréttinni að í janúar hafi indverskur sérsveitarmaður skotið fjóra yfirmenn sína til bana eftir rifrildi sem snerist um það hvort hann fengi tímabundið frí.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert