Handtekinn fyrir morð á eiginmanninum

Bandarískur lögreglumaður. Rannsóknin á morði Wright hefur verið eitt stærsta …
Bandarískur lögreglumaður. Rannsóknin á morði Wright hefur verið eitt stærsta óupplýsta morðmál sem lögreglan í Memphis hefur haft á sinni könnu. AFP

Fyrrverandi eiginkona körfuboltaleikmannsins Lorenzen Wright, sem lék í bandarísku NBA deildinni, var handtekin í Kaliforníu á föstudagskvöld í tengslum við morðið á Wright fyrir sjö árum síðan.

Sherra Wright-Robinson var ákærð fyrir samsæri og morð samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Memphis. Mun hún koma fyrir dómara á mánudag að sögn AFP-fréttastofunnar.

Lík Wright fannst í suðausturhluta Memphis í júlí 2010, 10 dögum eftir að tilkynnt væri að hans væri saknað.

Rannsakendur fundu skothylki úr mismunandi byssum á vettvangi og fimm skotsár fundust á líki Wright við krufningu að sögn dagblaðsins Memphis Commercial Appeal.

Rannsóknin á morði Wright hefur verið eitt stærsta óupplýsta morðmál sem lögreglan í Memphis hefur haft á sinni könnu.

Wright hafði leikið með liðinu Memphis Grizzlies og fjórum öðrum liðum í NBA deildinni áður en hann hætti atvinnumennsku 2009.

Auk eiginkonunnar fyrrverandi hefur Billy R. Turner, sem var djákni við baptistakirkju í Collierville þar sem eiginkonan var sóknarbarn, einnig verið handtekinn vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert