Ætlar að loka gettóum

Forsætisráðherra Danmerkur, Lars Løkke Rasmussen.
Forsætisráðherra Danmerkur, Lars Løkke Rasmussen. AFP

Forsætisráðherra Danmerkur, Lars Løkke Rasmussen, greindi frá því í ávarpi sínu til þjóðarinnar á nýársdag að ríkisstjórnin stefndi að því að loka gettóum í Danmörku. Hann segist tilbúinn til þess að jafna byggingar við jörðu ti9l þess að takast á við félagsleg vandamál sem tengjast slíkum jaðarsvæðum.

Listi yfir gettóin í Danmörku

Rasmussen hefur áður gert slík fátækrahverfi að umtalsefni og heitið því að vinna bug á vandamálum sem þeim fylgja. Þetta kom ítrekað fram í ræðum sem hann flutti árið 2010. Í ávarpinu nú talaði hann um að jafna byggingar við jörðu og koma yngri börnum inn á leikskóla en nú er. Í svipaðan streng tók Anders Fogh Rasmussen í nýársávarpi sínu 2004 þegar hann gegndi starfi forsætisráðherra. Þá kom fram að nauðsynlegt væri að vinna af því af heilum hug að koma í veg fyrir myndun slíkra gettóa. Mikilvægt væri að börn lærðu góða dönsku áður en þau færu í skóla og veita þyrfti ungum innflytjendum aðstoð við að læra dönsku og koma í veg fyrir að þeir endi í glæpagengjum og atvinnuleysi.

Í fréttum hefur komið fram að slíkum fátækrahverfum hefur fækkað í Danmörku á undanförnum misserum.

Politiken fór yfir heitstrengingar danskra ráðamanna varðandi gettóin.

Danska ríkisútvarpið fer yfir verkefnalista ríkisstjórnarinnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert