Beita Írana þvingunum á nýjan leik

Donald Trump í Hvíta húsinu í dag.
Donald Trump í Hvíta húsinu í dag. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti fyrir stundu að hann ætli að draga Bandaríkin úr kjarnorkusamningum við Írana. Trump ræddi málið á blaðamannafundi sem hófst klukkan 18 að íslenskum tíma.

Samkomulagið er frá árinu 2015 en með því að segja sig frá því munu þvingunaraðgerðir Bandaríkjanna gegn Íran verða settar fram að nýju. Jafn­framt hyggj­ast stjórn­völd í Banda­ríkj­un­um beita nýj­um efna­hags­leg­um þving­un­um.

Bandaríkin, Frakkland, Bretland, Rússland, Kína, Þýskaland og Evrópusambandið gerðu samkomulagið við Írana árið 2015 en í því fólst að Íranar takmörkuðu kjarnorkuframleiðslu sína gegn því að stórveldin felldu niður refsiaðgerðir gegn Íran.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert