Íbúum bjargað frá glóandi hrauni

Glóandi hraunið spýtist upp í loftið og er það þunnt …
Glóandi hraunið spýtist upp í loftið og er það þunnt að það rennur á miklum hraða til sjávar. AFP

Þyrlur voru notaðar til að bjarga fjórum íbúum sem voru innlyksa milli hrauntungna sem komið hafa upp úr eldfjallinu Kilauea á Hawaii, degi eftir að mikil sprenging varð í fjallinu og gríðarlegur gosmökkur steig til himins.

Hrauntaumarnir hafa nú einangrað um fjörutíu hús á svæðinu en björgun fjögurra íbúa, sem þar voru staddir, tókst vel. 

Jarðvísindastofnun Bandaríkjanna segir að hraunið renni á miklum hraða eða um 300-400 metra á hverjum klukkutíma. 

Kilauea er eitt virkasta eldfjall í heimi og eitt fimm eldfjalla sem eru á Stóru-Eyju Hawaii.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert