Flugvél úr seinni heimsstyrjöld brotlenti í ölpunum

Brak flugvélarinnar, JU52, sem brotlenti í svissnesku ölpunum í gær. …
Brak flugvélarinnar, JU52, sem brotlenti í svissnesku ölpunum í gær. Vélin sinnti hergagnaflutningi í seinni heimsstyrjöldinni. AFP

20 manns létust í flugslysi í svissnesku ölpunum í gær. Flugvélin, sem er frá árinu 1939 og var meðal annars notuð í seinni heimsstyrjöldinni, hrapaði í fjalls­hlíð í Piz Segn­as í um 2.500 metra hæð. Tvö mannskæð slys hafa orðið í Sviss um helgina.

Frétt mbl.is 

11 karlar og 9 konur voru um borð í vélinni. Flugvélin flaug frá Ticino í suðurhluta Sviss og var ferðinni heitið til herflugvallarins Duebendorf í Zurich. 

„Vélin tók 180 gráðu stefnu í suður og kolféll til jarðar,“ hefur dagblaðið 20 Minutes eftir sjónarvotti. Brak vélarinnar þeyttist í allar áttir sem gefur til kynna að sprenging hafi orðið í vélinni.

Vélin án flugrita

Rannsókn er hafin á tildrögum slyssins. Sökum aldurs vélarinnar er enginn flugriti um borð og því þurfa rannsakendur að reiða sig á vitnisburð sjónarvotta og brak vélarinnar við rannsóknina.

Flugvélin er í eigu JU-Air, fyrirtækis sem tengist svissneska flughernum. Framkvæmdastjóri JU-Air, Kurt Waldmeier, segir að vélin hafi farið í gegnum reglubundið eftirlit í júlí. Fyrirtækið rekur lítinn flota af Junker-flugvélum sem eru allar frá árinu 1939. Vélarnar eru til útleigu og eru allir flugmenn á vegum fyrirtækisins fyrrverandi hermenn og atvinnuflugmenn.

Talið er að allir 20 farþegar vélarinnar hafi látist.
Talið er að allir 20 farþegar vélarinnar hafi látist. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert