Rannsaka atvikið sem hryðjuverk

Mikill viðbúnaður var við þinghúsið eftir atvikið, sem nú er …
Mikill viðbúnaður var við þinghúsið eftir atvikið, sem nú er rannsakað sem hryðjuverk. AFP

Breska lögreglan tilkynnti nú fyrir skemmstu að atvikið þegar bíl var ekið á hindranir við breska þinghúsið í morgun með þeim afleiðingum að tveir særðust sé nú rannsakað sem hryðjuverk.

Ökumaðurinn, sem var handtekinn á vettvangi, er nú í varðhaldi á grundvelli hryðjuverkalaga að því er BBC greinir frá.

Atvikið átti sér stað um hálfáttaleytið í morgun að staðartíma, en silfurlitum bíl var þá ekið á hindranir sem umkringja þinghúsið. Tveir hjólreiðamenn slösuðust, en meiðsl þeirra eru ekki talin alvarleg.

Lögregla umkringdi skömmu síðar bílinn og maður á þrítugsaldri var leiddur á brott í járnum.

Enginn annar var í bílnum og engin vopn hafa enn fundist að sögn BBC.

„Eins og er lítum við á atvikið sem hryðjuverk og hryðjuverkadeild London-lögreglunnar fer nú með rannsóknina,“ segir í yfirlýsingu frá Scotland Yard.

Tæknideild lögreglunnar er enn að rannsaka bílinn sem ekki hefur verið fluttur á brott.

Nokk­ur fjöldi sjón­ar­votta á vett­vangi hefur sagt að svo virðist sem silf­ur­lit­um bíln­um hafi vilj­andi verið ekið á fólkið. „Ég held að þetta hafi verið vilj­andi,“ seg­ir Ewal­ina Ochab. „Bíll­inn ók hratt í átt að hindr­un­un­um.“

Sjálf var hún á gang­stétt­inni hinum meg­in veg­ar­ins. „Ég heyrði hávaða og ein­hver öskraði. Ég sneri mér við og sá þá silf­ur­lit­an bíl aka mjög hratt, jafn­vel á gang­stétt­inni, á rimla­grind­verkið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert