Kosta mótmælin hana lífið?

Israa al-Ghomgham. Stuðningsmenn hennar birtu þessa mynd á samfélagsmiðlum á …
Israa al-Ghomgham. Stuðningsmenn hennar birtu þessa mynd á samfélagsmiðlum á dögunum en hér er hún barn að aldri.

„Allar aftökur eru skelfilegar en að fara fram á dauðarefsingu yfir aðgerðasinna eins og Israa al-Ghomgham, sem er ekki einu sinni sökuð um ofbeldisfulla hegðun, er ómennska.“

Þessi orð er að finna í yfirlýsingu sem Sarah Leah Whitson, framkvæmdastjóri Mannréttindavaktarinnar í Mið-Austurlöndum, sendi frá sér í vikunni, en samtökin mótmæla harðlega áformum ríkissaksóknara í Sádi-Arabíu um að fara fram á dauðadóm yfir téðum aðgerðasinna sem setið hefur bak við lás og slá frá árinu 2015. Hún var þá handtekin ásamt eiginmanni sínum fyrir friðsamleg mótmæli, að sögn Mannréttindavaktarinnar, sem óttast fordæmisgildi málsins, en fjöldi kvenna situr í fangelsi í landinu fyrir þær sakir að hafa talað fyrir mannréttindum.

Mannréttindavaktinni þykir líka út úr korti af réttað sé í máli Ghomgham á vettvangi hryðjuverkadómstóls landsins.

Sömu örlög bíða eiginmanns Ghomgham, Moussa al-Hashem, og þriggja annarra karlmanna verði þeir fundnir sekir. Ekki eru heimildir fyrir því að kona hafi í annan tíma verið dæmd til dauða fyrir störf sín í þágu mannréttinda í landinu.

Að minnsta kosti þrettán manns sem barist hafa fyrir mannréttindum og auknum réttindum konum til handa hafa verið teknir höndum í Sádi-Arabíu síðan í maí, sakaðir um aðgerðir sem ógna þjóðaröryggi. Sumir hafa verið leystir úr haldi en aðrir sitja enn inni án þess að þeim hafi verið birt ákæra, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins, BBC.

Brotin ekki refsiverð

Mannréttindavaktin segir meint brot Ghomgham ekki refsiverð, en henni er meðal annars gefið að sök að hafa tekið þátt í mótmælum, að kyrja slagorð sem eru yfirvöldum í Sádi-Arabíu andsnúin, að reyna að hafa áhrif á skoðanir almennings og að taka upp mótmæli og sýna frá þeim á samfélagsmiðlum.

Ghomgham tilheyrir minnihluta sjíamúslíma í landinu og hefur barátta hennar fyrir réttindum þeirra í Qatif-héraði verið súnníska meirihlutanum, ekki síst stjórnvöldum, þyrnir í augum. Sjíar njóta ekki sömu réttinda og súnníar í Sádi-Arabíu og hafa ekki sömu möguleika á því að brjótast til mennta og finna sér störf við hæfi. Arabíska vorið sneiddi ekki hjá Sádi-Arabíu og gaf sjíum byr undir báða vængi. Barátta þeirra fyrir auknum réttindum hefur verið virk síðan og var Ghomgham framarlega í flokki meðan hún gat enn um frjálst höfuð strokið.

Málið þykir hafa varpað skugga á hinn unga krónprins Sádi-Arabíu, Mohammed bin Salman, en hann hefur gefið sig út fyrir að vera „nútímalegur umbótasinni“. Hann hefur raunar fylgt þeim orðum eftir í verki; til dæmis með efnahagsumbótum, með því að opna kvikmyndahús, með því að hneppa suma af ættingjum sínum í varðhald vegna spillingar og síðast en ekki síst með því að losa um hömlur gagnvart konum, sem mega nú til dæmis eftir langa mæðu setjast undir stýri í landinu.

Á sama tíma hefur bin Salman ekki farið í grafgötur með þá sannfæringu sína að Sádi-Arabía eigi áfram að vera konungdæmi, þar sem farið verði að hans forskrift.

Ekkert heyrst í prinsinum

Hvorki bin Salman né aðrir ráðamenn í landinu hafa tjáð sig um mál Ghomgham þrátt fyrir áskoranir, meðal annars frá Mannréttindavaktinni. „Sé krónprinsinum í raun og veru alvara með umbótum ætti hann þegar í stað að láta til sín taka og tryggja að engum aðgerðasinna sé haldið að tilefnislausu fyrir störf sín í þágu mannréttinda,“ segir Sarah Lea Whitson í yfirlýsingu sinni.

Hún telur ekki ástæðu til bjartsýni. „Skýlaus valdníðsla konungdæmisins gerir almannatenglunum sem það hefur á sínum snærum stöðugt erfiðara fyrir þegar kemur að því að sannfæra bandamenn og hinn alþjóðlega viðskiptaheim um það að ævintýrið um „umbætur“ sé í raun og veru að eiga sér stað.“

Ghomgham kemur næst fyrir dóm 28. október næstkomandi.

Nánar er fjallað um málið í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 

Öll spjót standa nú á Mohammed bin Salman, krónprinsi Sádi-Arabíu, …
Öll spjót standa nú á Mohammed bin Salman, krónprinsi Sádi-Arabíu, en hann hefur sagst vera maður umbóta. AFP
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert